Úrslit kosninga hafa nú verið birt frá þrjátíu og tveimur sveitarfélögum á vefnum. Eingöngu hefur reynst unnt að birta úrslit frá tuttugu og fimm sveitarfélögum þar sem óbundin kosning fór fram og þeim sjö sveitarfélögum þar sem varð sjálfkjörið. Birting úrslita úr þeim sveitarfélögum þar sem bundin hlutfallskosning fór fram verður að bíða enn um sinn en úrslit í flestum þeirra eru birt á vef ríkisútvarpsins.