Ræðisskrifstofa opnuð í Aveiro í Portúgal
Nr. 87
FRÉTTATILKYNNING
frá utanríkisráðuneytinu
frá utanríkisráðuneytinu
Nýlega var opnuð ræðisskrifstofa í Aveiro í Portúgal, en þar hefur ekki verið íslenskur ræðismaður áður. Var António Carlos Vieira Ribau skipaður kjörræðismaður með ræðisstigi þ. 30. júlí s.l., en hann er rekur fyrirtæki sem flytur inn íslenskan saltfisk, fullvinnur hann og markaðssetur í Portúgal.
Heimilisfang ræðisskrifstofunnar er:
c/o Pramesas Produtos Alimentares LDA
Rua Sao Joao de Deus
3830 Gafanha da Nazaré (Aveiro), Portúgal
Sími: +351 (234) 364 078
Telefax: +351 (234) 364 079
Netfang: [email protected]
Utanríkisráðuneytið
Reykjavík, 27. ágúst 2002