Viðtalstímar við fulltrúa í sendiskrifstofum Íslands erlendis sem sinna viðskiptamálum
Nr. 089
FRÉTTATILKYNNING
frá utanríkisráðuneytinu
frá utanríkisráðuneytinu
Utanríkisráðuneytið býður fyrirtækjum, samtökum, stofnunum og einstaklingum viðtalstíma við fulltrúa í sendiskrifstofum Íslands erlendis sem sinna viðskiptamálum.
Magnús Bjarnason, starfandi aðalræðismaður Íslands í New York, verður til viðtals í utanríkisráðuneytinu fimmtudaginn 5. september nk. kl. 9:30-12:00.
Unnur Orradóttir Rametta, viðskiptafulltrúi Íslands í París verður til viðtals í utanríkisráðuneytinu þriðjudaginn 3. september nk. kl. 13:30-16:00.
Ruth Bobrich, viðskiptafulltrúi Íslands í Berlín, verður til viðtals í utanríkisráðuneytinu fimmtudaginn 5. september nk. kl. 9:30-12:00.
Marina Buinovskaya, viðskiptafulltrúi Íslands í Moskvu, verður til viðtals í utanríkisráðuneytinu fimmtudaginn 5. september nk. kl. 9:30-12:00.
Auður Edda Jökulsdóttir, sendiráðunautur í sendiráði Íslands í Peking, verður til viðtals í utanríkisráðuneytinu þriðjudaginn 3. september nk. kl. 13:30-16:00.
Jafnframt verða til viðtals Maki Onjo, frá sendiráði Íslands í Tókýó, í utanríkisráðuneytinu fimmtudaginn 5. september nk. kl. 9:30-12:00 og Eyrún Hafsteinsdóttir, frá sendiráði Íslands í London, í utanríkisráðuneytinu þriðjudaginn 3. september nk. kl. 13:30-16:00.
Nánari upplýsingar eru veittar í síma 545 9900 þar sem tímapantanir eru einnig skráðar.
Utanríkisráðuneytið
Reykjavík, 30. ágúst 2002