Hoppa yfir valmynd
20. september 2002 Matvælaráðuneytið

Ársfundur NAFO.

Fréttatilkynning


Dagana 16. - 20. september sl. var haldinn í Santiago de Compostela á Spáni 24. ársfundur Norðvestur-Atlantshafs fiskveiðistofnunarinnar, NAFO. Formaður íslensku sendinefndarinnar var Þórir Skarphéðinsson lögfræðingur í sjávarútvegsráðuneytinu.

Á dagskrá fundarins voru m.a. málefni sem varða hagsmuni Íslands. Í fyrsta lagi að ákveða fyrirkomulag rækjuveiða á Flæmingjagrunni fyrir árið 2003, í öðru lagi að ræða breytingar á eftirliti með veiðum á svæðinu og í þriðja lagi að ákveða stjórnun veiða á úthafskarfa á samningssvæði NAFO.

Fram kom hjá vísindanefnd NAFO að ástand rækjustofnsins á Flæmingjagrunni sé gott. Samþykkt var óbreytt stjórn á veiðunum fyrir árið 2003 og að dagafjöldinn yrði sá sami og á árinu 2002. Ákvörðun um dagafjölda verður þó hugsanlega endurskoðuð í ljósi vísindaráðgjafar sem væntanleg er síðar á þessu ári. Ísland hefur frá því að NAFO samþykkti að taka upp sóknarstýringu til stjórnunar á rækjuveiðum á Flæmingjagrunni árið 1995 mótmælt því fyrirkomulagi. Mótmæli þessi voru tilkomin vegna efasemda íslenskra stjórnvalda um að hægt væri að stjórna veiðunum með sóknarstýringu en Ísland hefur frá upphafi lagt til að veiðunum væri stjórnað með aflamarki. Ísland ítrekaði mótmæli sín við sóknarmarkskerfið og mun áfram stjórna veiðunum einhliða með aflamarki, sem ákveðið verður fyrir árið 2003 þegar niðurstaða kemur frá vísindanefnd NAFO.

Á fundinum bar Ísland fram tillögu um tilraunaverkefni til tveggja ára um breytt eftirlit á samningssvæði NAFO. Tilllagan gerði ráð fyrir að að uppfylltum ströngum tæknilegum atriðum með gerfihnattaeftirliti mætti draga verulega úr fjölda eftirlitsmanna gegn mun nákvæmari upplýsingum um afla og aflabrögð með rafrænum hætti.
Tillagan vakti mikil viðbrögð og ákveðið var að þrátt fyrir að hún fengist ekki samþykkt óbreytt var samkomulag um að vinna að frekari útfærslu hennar fyrir næsta aðalfund. Hefst sú vinna þegar á næstu vikum í undirnefnd NAFO.

Frá því úthafskarfaveiðar hófust hafa veiðarnar nánast eingöngu verið stundaðar austan samningssvæðis NAFO, þ.e. á samningssvæði Norðaustur-Atlantshafsfiskveiðinefndarinnar (NEAFC). Á undanförnum 2-3 árum hefur veiði aukist á NAFO svæðinu samfara því að úthafskarfastofninn hefur færst inn á saningssvæði þess. Erfitt hefur reynst að ná stjórn á þeim veiðum vegna þess að ákvörðun NEAFC hefur ekki verið bindandi fyrir þær þjóðir sem ekki eru aðilar að þeim samtökum og hafa þau því gert tilkall til hlutdeildar í stofninn. Til að reyna að ná heildarstjórn á veiðunum varð samkomulag um að þeim þjóðum yrði úthlutað 7500 tonnum af úthafskarfa árið 2003.


Sjávarútvegsráðuneytið, 20 september 2002

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum