Hoppa yfir valmynd
30. október 2002 Mennta- og barnamálaráðuneytið

Sérfræðiþjónusta sveitarfélaga vegna grunnskóla

Sérfræðiþjónusta sveitarfélaga vegna grunnskóla


Á síðustu misserum hefur menntamálaráðuneytið gert tvær kannanir sem snerta grunnskóla. Gerð var könnun á sérfræðiþjónustu sveitarfélaga vegna grunnskóla, sbr. reglugerð nr. 386/1996 um sérfræðiþjónustu skóla. Markmið með könnuninni var að fá fram upplýsingar um skipulag, inntak og framkvæmd sérfræðiþjónustu í grunnskólum sem sveitarfélögum ber að sinna. Einnig var gerð könnun á úrræðum grunnskóla fyrir afburðanemendur. Markmið könnunarinnar var að fá fram upplýsingar um hvort skólarnir hefðu úrræði fyrir afburðanemendur, þ.e. nemendur sem skara fram úr jafnöldrum sínum í námi, og hver þau væru.

Meðfylgjandi eru stuttar skýrslur sem menntamálaráðuneytið hefur gefið út með niðurstöðum úr framangreindum könnunum.

Vakin er athygli á því að skýrslurnar eru einnig aðgengilegar á heimasíðu menntamálaráðuneytisins.


(September 2002)


    Hafa samband

    Ábending / fyrirspurn
    Ruslvörn
    Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum