Hoppa yfir valmynd
31. október 2002 Mennta- og barnamálaráðuneytið

Evrópumiðstöð fyrir þróun í sérkennslu

Til grunnskóla, framhaldsskóla, skólaskrifstofa og ýmissa annarra aðila.

Evrópumiðstöð fyrir þróun í sérkennslu

Hjálagt er nýjasta fréttabréf Evrópumiðstöðar fyrir þróun í sérkennslu (The European Agency for Development in Special Needs Education), Euronews nr. 9, sem gefið hefur verið út á þjóðtungum allra þeirra landa sem aðild eiga að miðstöðinni.

Evrópumiðstöð fyrir þróun í sérkennslu er sjálfstæð stofnun sem menntamálaráðuneyti 22 þátttökulanda standa að, þ.m.t. Íslands. Eitt meginmarkmið með starfsemi Evrópumiðstöðvarinnar er að stuðla að umbótum í sérkennslu í Evrópu og auka samstarf Evrópulanda á því sviði.

Sérstaklega er vakin athygli á umfjöllun í fréttabréfinu um Ár fatlaðra í Evrópu 2003 en á þessu ári verða réttindamál fatlaðra í brennidepli. Áhersla verður lögð á að auka skilning á réttindum fatlaðra til að njóta jafnréttis og almennum réttindum þeirra sem þjóðfélagsþegnar, t.d. rétti að að stunda nám og njóta þjálfunar.

Þess er vænst að ofangreint efni verði kynnt í stofnun yðar eða samtökum.

Einnig er bent á vefsíðu Evrópumiðstöðvarinnar: http://www.european-agency.org

Vakin er athygli á því að Bryndís Sigurjónsdóttir aðstoðarskólameistari Borgarholtsskóla er sérstakur samstarfsaðili Evrópumiðstöðvarinnar fyrir Íslands hönd. Þeir sem hafa áhuga á að kynna sér frekar starfsemina er bent á netfang hennar [email protected].

(Október 2002)


Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum