Átak gegn verslun með konur - ráðstefna
Átak gegn verslun með konur
— ráðstefna verður haldin á Grand Hótel —
Á fundi jafnréttismálaráðherra frá Norðurlöndum og Eystrasaltsríkjunum hinn 15. júní 2001 sem átti sér stað á ráðstefnunni Konur og lýðræði (Women and Democracy) í Vilnius í Litháen var lögð fram tillaga um sameiginlega baráttu Norðurlandanna og Eystrasaltsþjóðanna gegn verslun með konur (mansal). Var í framhaldinu ákveðið að efna til sameiginlegs átaks jafnréttis- og dómsmálaráðherra nefndra ríkja sem fælist í að upplýsa almenning um viðfangsefnið og vandamál sem því tengdust. Hér á landi hefur skipulagning verkefnisins því verið sameiginlegt verkefni félagsmálaráðuneytis og dómsmálaráðuneytis, auk þess sem settur var á laggirnar undirbúningshópur ýmissa aðila til að undirbúa átakið hér á landi. Verkefnisstjórar átaksins hér á landi eru Ásta S. Helgadóttir, lögfræðingur í félagsmálaráðuneyti og Dís Sigurgeirsdóttir, lögfræðingur í dómsmálaráðuneyti.
Ákveðið hefur verið að átakið á Íslandi feli í sér útgáfu aukablaðs með Morgunblaðinu sem mun koma út laugardaginn 22. febrúar nk. Einnig verður haldin ráðstefna föstudaginn 28. febrúar nk. á Grand Hótel í Reykjavík og má sjá dagskrá hennar hér að neðan.
ÁTAK GEGN VERSLUN MEÐ KONUR
Kvikmyndasýning og ráðstefna dagana 27.–28. febrúar 2003
Dagskrá ráðstefnunnar
Grand Hótel: Föstudagur 28. febrúar
12:30 Skráning
13:00 Setning
13:10 Ávörp dómsmálaráðherra frú Sólveigar Pétursdóttur og félagsmálaráðherra herra Páls Péturssonar. Ávarp Sólveigar
13:30 Átak gegn verslun með konur og Palermosamningurinn
Gunilla Ekberg, yfirverkefnisstjóri átaks Norður-landanna og Eystrasaltsríkjanna gegn verslun með konur. Fyrirlestur ekki til skriflegur.
14:00 Mansal í Bandaríkjunum
Andrew Lelling, lögfræðingur á mannréttindaskrifstofu bandaríska dómsmálaráðuneytisins. Fyrirlestur ekki til skriflegur.
14:30 Nauðsyn lögreglusamvinnu
Camilla Örndahl, yfirmaður mansalsdeildar ríkislögreglustjórans í Stokkhólmi. Fyrirlestur Camillu Örndahl á PDF sniði.
15:00 Kaffihlé
15:30 "Ég fæ ekki mikið út úr því". Karlar og kynlífskaup
Ingólfur Gíslason, félagsfræðingur, Jafnréttisstofu. Fyrirlestur Ingólfs - word skjal - Fyrirlestur Ingólfs - power point skjal
15:45 Áhrif kynlífsiðnaðar á ungar stúlkur
Guðrún Agnarsdóttir, læknir og forstöðumaður Neyðarmóttöku Landspítalans. Fyrirlestur Guðrúnar - word skjal
15:55 Alþjóðavæðing, konur og mansal
Rósa Erlingsdóttir, stjórnmálafræðingur, jafnréttisfulltrúi Háskóla Íslands og verkefnisstjóri hjá Rannsóknarstofu í kvennafræðum. Fyrirlestur Rósu - word skjal
16:05 Hlutverk frjálsra félagasamtaka í baráttunni gegn verslun með konur
Margrét Steinarsdóttir, lögfræðingur í framkvæmdahópi Stígamóta. Fyrirlestur Margrétar - word skjal
16:15 Framboð svarar eftirspurn
Þorbjörg Inga Jónsdóttir, hrl., framkvæmdastjóri Kvennaráðgjafarinnar og formaður Kvenréttindafélags Íslands. Fyrirlestur væntanlegur.
16:30 Fyrirspurnir
17:00 Ráðstefnuslit
Fundarstjóri er Sigrún Árnadóttir, framkvæmdastjóri Rauða kross Íslands
Vinsamlegast tilkynnið þáttöku til: [email protected]
(eða í síma: 545 9082) fyrir 26. febrúar næstkomandi.
Þátttökugjald er 1.500 kr. (innifalið er kvikmyndasýning og kaffi á ráðstefnunni)