Hoppa yfir valmynd
26. febrúar 2003 Mennta- og barnamálaráðuneytið

Kynning á drögum að nýrri námskrá sjúkraliðabrautar á heimasíðu menntamálaráðuneytisins

Bréfið er sent starfsgreinaráðum, framhaldsskólum, samstarfsnefnd um starfsnám á framhaldsskólastigi, Kennarasambandi Íslands, Sjúkraliðafélagi Íslands og heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneyti.

Kynning á drögum að nýrri námskrá sjúkraliðabrautar á heimasíðu menntamálaráðuneytisins


Menntamálaráðuneytið hefur birt drög að nýrri námskrá sjúkraliðabrautar á heimasíðu sinni, www.menntamalaraduneyti.is/ Námskrá sjúkraliðabrautar var seinast endurskoðuð árið 1997. Hún hefur nú sætt endurskoðun starfsgreinaráðs heilbrigðis- og félagsgreina sem hefur gert minniháttar breytingar á námsbrautinni. Ritaður hefur verið inngangur með lýsingum á störfum, starfssviði og kröfum um hæfni og þekkingu sem gerðar eru til sjúkraliða. Þá er að finna í námskránni ítarlegri markmiðssetningu og áfangalýsingar en í fyrri námskrá.

Námskrárdrögin verða til kynningar á framangreindu vefsvæði næstu fjórar vikurnar eða til 25. mars 2003. Á þeim tíma gefst hagsmunaaðilum og almenningi kostur á að senda inn athugasemdir og ábendingar um námskrána í heild, eða einstaka þætti hennar, til menntamálaráðuneytisins, Sölvhólsgötu 4, 150 Reykjavík. Einnig er hægt að senda athugasemdir á netfangið [email protected]. Að loknu umsagnarferlinu mun ráðuneytið gera þær lagfæringar á námskránni sem nauðsynlegar teljast, staðfesta hana og senda auglýsingu um gildistöku hennar til birtingar í Stjórnartíðindum. Námskráin verður að því loknu birt á námskrárvef ráðuneytisins.

Farið er fram á að efni þessa bréfs sé kynnt fyrir þeim sem það á erindi til.

(Febrúar 2003)







Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum