Hoppa yfir valmynd
6. mars 2003 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið

Átak gegn verslun með konur - kvikmyndasýning

Fyrirhugað var að sýna sænsku kvikmyndina Lilya 4-ever 27. febrúar sl. í tengslum við ráðstefnuna vegna átaks gegn verslun með konur sem haldin var á Grand Hótel 28. febrúar sl. Vegna óviðráðanlegra orsaka féll sýningin niður.

Nú hefur verið ákveðið að sýna myndina og er því þáttakendum á ráðstefnunni hér með tilkynnt um sýningu á Lilya 4-ever í Háskólabíó þriðjudaginn 11. mars nk. kl. 13:00. Eins og fram kom í auglýsingu um ráðstefnuna var inngangseyrir innifalinn í þáttökugjaldi. Vonast er til að sem flestir sjái sér fært að mæta.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum