Dagsetningar samræmdra prófa í 4. og 7. bekk 2003
Til skólastjóra og skólanefnda grunnskóla
Dagsetningar samræmdra prófa í 4. og 7. bekk 2003
Menntamálaráðherra hefur ákveðið að samræmd próf í íslensku og stærðfræði verði lögð fyrir nemendur í 4. og 7. bekk haustið 2003, sbr. 46. gr. laga nr. 66/1995 um grunnskóla.
Prófdagar verða sem hér segir:
Stærðfræði í 4. og 7. bekk. | Fimmtudagur, 16. október 2003 | kl. 9.00-12.00 | |
Íslenska í 4. og 7. bekk. | Föstudagur, 17. október 2003 | kl. 9.00-12.00 |
Ákvörðun þessi er tekin í samráði við Námsmatsstofnun sem sér um framkvæmd prófanna. Stofnunin sendir leiðbeiningar um framkvæmd prófanna til skóla fyrir skólabyrjun í haust.
(Mars 2003)