Hoppa yfir valmynd
12. mars 2003 Mennta- og barnamálaráðuneytið

Undanþágunefnd grunnskóla 2003

Undanþágunefnd grunnskóla


Til skólastjóra grunnskóla


Undanþágunefnd grunnskóla er skipuð samkvæmt lögum nr. 86/1998 um lögverndun á starfsheiti og starfsréttindum grunnskólakennara, framhaldsskólakennara og skólastjóra. Skipað hefur verið í nefndina að nýju til næstu fjögurra ára. Í nefndinni nú eiga sæti Sigríður Lára Ásbergsdóttir, deildarsérfræðingur í menntamálaráðuneytinu, formaður, Valgerður Eiríksdóttir, kennari, fulltrúi Kennarasambands Íslands og Kristín Aðalsteinsdóttir, dósent, fulltrúi Háskólans á Akureyri. Starfsmaður og jafnframt varaformaður er Erla Ó. Guðjónsdóttir, stjórnarráðsfulltrúi í menntamálaráðuneytinu, netfang: [email protected]

Meðfylgjandi sendist yður umsóknareyðublað um heimild til að ráða leiðbeinenda.

Nefndin vill ennfremur benda yður á að á heimasíðu menntamálaráðuneytisins www.menntamalaraduneyti.is er hægt að nálgast umsóknareyðublaðið, lög nr. 86/1998 um lögverndun á starfsheiti og starfsréttindum grunnskólakennara, framhaldsskólakennara og skólastjóra, reglugerð nr. 751/1998 um undanþágunefnd, skýrslur um störf undanþágunefndar undanfarinna ára og yfirlit yfir umsóknir samþykktar af ráðherra.

Vakin er sérstök athygli á að til að afgreiðsla umsókna gangi fljótt og vel er nauðsynlegt að þar til gerð eyðublöð séu vandlega útfyllt og að þær upplýsingar og þau fylgigögn sem beðið er um fylgi með umsókn. Ófullnægjandi umsókn, sbr. 3. og 4. gr. reglugerðar nr. 751/1998 um undanþágunefnd grunnskóla verður ekki tekin til afgreiðslu.

Með ósk um ánægjulegt samstarf,
Undanþágunefnd grunnskóla

(Febrúar 2003)


Undanþágunefnd grunnskóla – Menntamálaráðuneytið – Sölvhólsgötu 4 – 150 Reykjavík
Sími: 545-9500 – Bréfasími: 562-3068

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum