Hoppa yfir valmynd
18. mars 2003 Mennta- og barnamálaráðuneytið

Dagsetningar samræmdra prófa veturinn 2003 - 2004

Til skólastjóra og
skólanefnda grunnskóla

Dagsetningar samræmdra prófa veturinn 2003-2004

Í bréfi menntamálaráðuneytisins dags. 25. febrúar 2003, þar sem tilkynnt var um dagsetningar á samræmdum prófum í 10. bekk í grunnskólum vorið 2004, voru gerð þau leiðu mistök að segja að enskuprófið yrði hinn 4. apríl 2004. Rétt dagsetning er 4. maí 2004. Beðist er velvirðingar á þessum mistökum og leiðréttist þetta hér með.

Menntamálaráðherra hefur ákveðið að samræmd lokapróf verði lögð fyrir í sex námsgreinum í 10. bekk vorið 2004, sbr. reglugerð um fyrirkomulag og framkvæmd samræmdra lokaprófa í 10. bekk í grunnskólum nr. 414/2000 og aðalnámskrá grunnskóla frá 1999. Námsgreinar sem prófað verður úr eru: íslenska, danska, enska, náttúrufræði, samfélagsgreinar og stærðfræði.

Að gefnu tilefni skal tekið fram að samræmd lokapróf eru valfrjáls fyrir nemendur, sbr. 1. og 2. gr. reglugerðar nr. 414/2000. Nemendur hafa val um hvaða samræmd próf þeir velja að þreyta en vakin er athygli á því að samfélagsgreinar og náttúrufræði eru skyldunámsgreinar í grunnskóla og nemendur geta ekki valið sig frá námi í þessum greinum.

Prófgreinar og prófdagar í 10. bekk grunnskóla vorið 2004 verða sem hér segir:
Íslenska mánudagur 3. maíkl. 9.00-12.00
Enska þriðjudagur4. maíkl. 9.00-12.00
Samfélagsgreinarmiðvikudagur5. maíkl. 9.00-12.00
Danskaföstudagur7. maíkl. 9.00-12.00
Náttúrufræði mánudagur10. maíkl. 9.00-12.00
Stærðfræði þriðjudagur 11. maíkl. 9.00-12.00


Ákvörðun um prófdaga samræmdra prófa í 10. bekk vorið 2004 er tekin í samráði við Námsmatsstofnun sem sér um framkvæmd prófanna. Stofnunin sendir síðar nánari leiðbeiningar um framkvæmd prófanna.

(Mars 2003)


Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum