Hoppa yfir valmynd
28. mars 2003 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið

Fyrstu sameiningarkosningar á þessu kjörtímabili

Samstarfsnefnd um sameiningu Búðahrepps og Stöðvarhrepps hefur ákveðið að leggja til að íbúar þessara sveitarfélaga greiði atkvæði um sameiningu þeirra í eitt sveitarfélag. Hafa sveitarstjórnir beggja sveitarfélaga fallist á að atkvæðagreiðslan fari fram laugardaginn 10. maí nk., samhliða kosningum til Alþingis.

Kosningarrétt eiga allir íbúar þessara sveitarfélaga sem náð hafa 18 ára aldri þegar kosningin fer fram og uppfylla skilyrði 2. gr. laga um kosningar til sveitarstjórna, nr. 5/1998. Þetta þýðir m.a. að danskir, finnskir, norskir og sænskir ríkisborgarar sem hafa átt lögheimili hér á landi í þrjú ár samfellt fyrir kjördag, og aðrir erlendir ríkisborgarar sem hafa átt lögheimili hér á landi í fimm ár samfellt fyrir kjördag, mega greiða atkvæði um tillögu sameiningarnefndar. Er þetta í samræmi við breytingu sem gerð var á fyrrgreindum lögum á árinu 2002.

Skilyrði er að kjósandi eigi lögheimili í sveitarfélaginu samkvæmt íbúaskrá þjóðskrár þremur vikum fyrir kjördag. Þeir sem hyggjast flytja lögheimili sitt fyrir þann tíma þurfa að tilkynna breytinguna til Hagstofu Íslands í síðasta lagi miðvikudaginn 16. apríl nk.

Utankjörfundaratkvæðagreiðsla er þegar hafin. Unnt er að greiða atkvæði utan kjörfundar hjá sýslumönnum um allt land. Erlendis fer atkvæðagreiðsla fram á skrifstofu sendiráðs eða fastanefndar hjá alþjóðastofnunum, kjörræðismönnum eða á öðrum stöðum samkvæmt ákvörðun utanríkisráðuneytis.

Atkvæðagreiðsla utan kjörfundar fer þannig fram að þeir kjósendur sem eru hlynntir sameiningu sveitarfélaganna tveggja skrifa "já" á kjörseðilinn en þeir sem eru mótfallnir sameiningu skrifa "nei".

Fleiri sameiningarkosningar eru ekki fyrirhugaðar á næstunni en heyrst hefur af vilja til sameiningarviðræðna nokkuð víða á landinu.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum