Upplýsingabæklingur fyrir nýja kjósendur
Fréttatilkynning
nr. 10 / 2003
Upplýsingabæklingur fyrir nýja kjósendur
Dóms- og kirkjumálaráðuneytið hefur gefið út upplýsingabækling fyrir ungt fólk sem mun kjósa í fyrsta sinn til Alþingis þann 10. maí nk. Tilgangur bæklingsins er að upplýsa unga kjósendur um framkvæmd kosningarathafnarinnar, útskýra nýja kjördæmaskipan og hvetja unga kjósendur til þáttöku í alþingiskosningum. Bæklingurinn er sendur til alls ungs fólks sem er fætt á tímabilinu 9. maí 1981 til og með 10. maí 1985. Einnig er hægt að nálgast bæklinginn á Netinu undir slóðinni http://www.kosning2003.is/web/UmVefinn/Kynningarefni
Í dóms- og kirkjumálaráðuneytinu,
7. apríl 2003.
7. apríl 2003.