Hoppa yfir valmynd
25. apríl 2003 Innviðaráðuneytið

Ferðamálasamstarf Íslands og Grænlands auglýsir eftir styrkumsóknum

Ferðamálasamstarf Íslands og Grænlands auglýsir eftir styrkumsóknum.

Styrkirnir geta aldrei numið nema 50% af heildarkostnaði viðkomandi verkefnis.

Umsóknir skulu sendar samgönguráðuneytinu – merktar SAMIK - fyrir 9. maí n.k. á eyðublöðum sem þar fást. Eyðublöðin er einnig að finna á heimasíðu ráðuneytisins. Allar upplýsingar þurfa að vera á dönsku eða ensku.
Nauðsynlegt er að leggja fram kostnaðaráætlun þess verkefnis sem sótt er um styrk til auk nákvæmra upplýsinga um umsækjendur, verkefnið og tilgang þess.

Stefnt er að því að ákvörðun um úthlutun styrkjanna liggi fyrir í byrjun júní.

Fyrri helmingur styrksins er að jafnaði greiddur út þegar ákvörðun um styrkveitingu liggur fyrir og seinni helmingur þegar viðkomandi verkefni er lokið.

Eldri umsóknir er nauðsynlegt að endurnýja.


Nánari upplýsingar veitir Birgir Þorgilsson,
stjórnarmaður SAMIK í síma 553 9799.



SAMIK
Samgönguráðuneytinu
Hafnarhúsinu v. Tryggvagötu
150 Reykjavík
www.samgonguraduneyti.is

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum