Undirritun samnings um byggingu sundlaugar í tengslum við íþróttahús Framhaldsskólans á Laugum
Tómas Ingi Olrich, menntamálaráðherra og Jóhann Guðni Reynisson, sveitarstjóri í Þingeyjarsveit, undirrita á morgun samning um byggingu sundlaugar í tengslum við íþróttahús Framhaldsskólans á Laugum.
Undirritunin fer fram í íþróttahúsinu að Laugum í Reykjadal í Þingeyjarsveit, á morgun, þriðjudaginn 29. apríl kl. 15:30. Fulltrúar fjölmiðla velkomnir.
Menntamálaráðuneytið, 28. apríl 2003