Hoppa yfir valmynd
9. maí 2003 Háskóla-٫ iðnaðar- og nýsköpunarráðuneytið

Samgöngur í tölum 2003

Samgönguráðuneytið hefur tekið saman og birt í myndritum nokkrar athyglisverðar staðreyndir um samgöngur. Myndritin eru gefin út í litlu kveri undir nafninu Samgöngur í tölum 2003.

Gerður er ýmis samanburður og sýnd þróun ýmissa atriða í þeim málaflokkum sem falla undir samgönguráðuneytið; vegamálum, ferðamálum, flugmálum og siglingamálum auk fjarskiptamála. Myndritunum er ætlað allt frá því að fjalla um þessa málaflokka með öðrum hætti en gert er vanalega til þess að sýna þróun og stöðu þeirra í samhengi við ýmis tengd mál. Sumum er síðan ætlað að setja fram tölur um hluti sem almennt er fjallað um án þess að nákvæmar tölur séu nefndar. Þá er kverinu ætlað að auðvelda almenningi að setja sig í samband við ráðuneytið og stofnanir þess því í kverinu er yfirlit yfir stofnanir samgönguráðuneytisins auk upplýsinga um póst- og netfang þeirra ofl.

Samgöngur í tölum 2003


Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta