OSPAR fundinum í Bremen lauk í dag
Í ályktun fundarins kemur fram að fjöldi ríkja telji að losun á geislavirkra efninu teknitín-99 í sjóinn frá Sellafield skuli hætt nú þegar. Fundurinn lýsti yfir ánægju með nýleg tilmæli breskra stjórnvalda þess efnis að losun frá Sellafield skuli hætt í níu mánuði. Á því tímabili munu bresk stjórnvöld leita tæknilegra lausna sem duga til þess að geyma varanlega eða farga teknitín-99 í stað þess að losa það í sjó. Finnist slíkar lausnir vænta aðildarríki OSPAR þess að þeim verði beitt.
Þegar niðurstaða lá fyrir lýsti Siv Friðleifsdóttir umhverfisráðherra yfir ánægju með að nú stefndi í að hætt verði fyrir full og allt að losa teknitín-99 í hafið svo framarlegar sem tæknilegar lausnir finnist til þess.
Nokkur umræða varð um nýlega úttekt Alþjóðahafrannsóknaráðsins (ICES) á ástandi fiskistofna og áhrifum fiskveiða á vistkerfin. Samkvæmt henni er ástandið í þessum efnum mjög alvarlegt í Norðursjó, Írska hafinu og Eystrasaltinu vegna ofveiði og slæms umhverfisástands. Staðan er mun betri við Ísland og Færeyjar m.a. annars vegna aðgerða stjórnvalda sem byggðar eru á vísindalegri ráðgjöf og langtímamarkmiðum. Fram kom í máli umhverfisráðherra á fundinum að mjög mikilvægt sé, vegna markaða okkar Íslendinga fyrir sjávarafurðir, að ekki verði alhæft og sagt að þorskstofnar séu í hættu allsstaðar því slíkt sé alls ekki raunin. Þetta sjónarmið var áréttað í niðurstöðu fundarins. Hins vegar voru þorskstofnar í Norðursjó og Írska hafinu settir á lista yfir tegundir sem eru í hættu.
Meðal annara mála sem afgreidd voru á fundinum um málefni hafsins voru leiðbeiningar um verndarsvæði í hafinu og stefnumörkun um það hvernig taka skuli tillit til heildarsamhengis í vistkerfum hafsins þegar teknar eru ákvarðanir um nýtingu þess.
Aðalfundur OSPAR verður haldinn í Reykjavík í lok júní 2004.
Frekari upplýsingar: www.ospar.is og Halldór Þorgeirsson (896 2130)
Frásagnir af gangi fundarins má finna á dagbók á www.siv.is.
Fréttatilkynning nr. 21/2003
Umhverfisráðuneytið