Nr. 5/2003 - Jónas R. Jónsson ráðinn forstöðumaður verkefnisins
Verkefnið snýst um kynningu og markaðssetningu á íslenska hestinum og byggir á samkomulagi landbúnaðarráðherra, samgönguráðherra og utanríkisráðherra frá 8. apríl sl. Auk framangreindra ráðuneyta eru Flugleiðir og Kaupþing-Búnaðarbanki stuðningsaðilar verkefnisins.
Jónas mun taka til starfa 1. ágúst n.k.
Landbúnaðarráðuneytinu,
9. júlí 2003
Fréttatilkynning frá landbúnaðarráðuneytinu nr. 5/2003