Torfastaðir sóttir heim
Þann 4. júlí sl. heimsótti Árni Magnússon, félagsmálaráðherra, meðferðarheimilið á Torfastöðum. Heimilið er rekið af hjónunum Drífu Kristjánsdóttur og Ólafi Einarssyni en allt að sex vistbörn eru þar hverju sinni. Ráðherra var sýnd aðstaðan og kynnt þau meðferðaráhöld sem lögð er áhersla á. Sérstaka athygli vakti þáttur hestamennskunnar í meðferðinni.
Móttökur voru góðar og ljóst að á Torfastöðum er rekin góð og uppbyggileg starfsemi sem skilað hefur góðum árangri í þau tuttugu og fimm ár sem heimilið hefur verið starfrækt.