Hoppa yfir valmynd
15. júlí 2003 Dómsmálaráðuneytið

Nýjungar á Réttarheimildavef

Rettarheimild.is
uppfærður



Réttarheimildavefurinn hefur nú verið uppfærður í annað sinn á skömmum tíma. Síðasta haust var vefurinn færður inn í eplica vefumsjónarkerfið frá Hugsmiðjunni. Nú hafa ýmsar breytingar verið gerðar á virkni vefjarins og útliti, helst ber að nefna að nú kemur nafn úrskurðaraðila fram við yfirlit á forsíðu og við leitarniðurstöðu og framsetning eldri úrskurða hefur breyst. Þá er ný mannanafnaskrá er kominn inn á réttarheimildarvefinn, þar sem hægt er á einum stað að finna samþykkt nöfn og skoða úrskurði mannanafnanefndar.


Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum