Kveðjuheimsókn framkvæmdarstjóra Atlantshafsbandalagsins til Íslands
Nr. 068
FRÉTTATILKYNNING
frá utanríkisráðuneytinu
frá utanríkisráðuneytinu
Framkvæmdarstjóri Atlantshafsbandalagsins, George Robertson lávarður, kemur í kveðjuheimsókn til Íslands mánudaginn 28. júlí n.k. en gert er ráð fyrir að hann láti af störfum í árslok. Hann mun eiga fund með Davíð Oddssyni, forsætisráðherra, og Halldóri Ásgrímssyni, utanríkisráðherra, á Þingvöllum.
Utanríkisráðuneytið
Reykjavík, 23. júlí 2003