Hoppa yfir valmynd
28. júlí 2003 Dómsmálaráðuneytið

Umsækjendur um embætti hæstaréttardómara

Umsóknarfrestur um laust embætti hæstaréttardómara rann út 25. júlí sl. Átta sóttu um embættið.

Umsækjendur um embætti hæstaréttardómara



Umsóknarfrestur um laust embætti hæstaréttardómara rann út 25. júlí sl. Um embættið sóttu:
Allan Vagn Magnússon, héraðsdómari,
Eggert Óskarsson, héraðsdómari,
Eiríkur Tómasson, prófessor,
Hjördís Hákonardóttir, héraðsdómari,
Jakob R. Möller, hæstaréttarlögmaður,
Ólafur Börkur Þorvaldsson, dómstjóri,
Ragnar Halldór Hall, hæstaréttarlögmaður og
Sigrún Guðmundsdóttir, hæstaréttarlögmaður.

Dómsmálaráðuneytið hefur í samræmi við 4. mgr. 4. gr. dómstólalaga nr. 15/1998 óskað eftir umsögn Hæstaréttar um hæfi og hæfni umsækjenda til að gegna dómaraembætti við réttinn.

Forseti Íslands skipar í embættið samkvæmt tillögu dómsmálaráðherra að fenginni umsögn Hæstaréttar.


Í dóms- og kirkjumálaráðuneytinu,
28. júlí 2003.


Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta