Samkeppni um hönnun veggspjalds í tilefni af leiðtogafundi um upplýsingasamfélagið (4.09.2003)
Til skólastjórnenda og kennara í
grunn- og framhaldsskólum
Fyrsti fundur leiðtoga heimsins um upplýsingasamfélagið verður haldinn í Sviss í desember nú í ár. Markmið fundarins er að leita leiða til að nútíma upplýsinga- og samskiptatækni geti gagnast ríkjum og borgurum um allan heim á jafnari máta. Menntamálaráðherra mun sækja fundinn fyrir hönd Íslands.
Í tengslum við leiðtogafundinn efna Sameinuðu þjóðirnar til samkeppni meðal skólabarna um gerð veggspjalds. Markmiðið með samkeppninni er að gefa nemendum tækifæri á að koma á framfæri hugmyndum sínum um upplýsingasamfélagið og býðst öllum börnum og unglingum í heiminum á aldrinum 9 til 19 ára að taka þátt. Myndefnið skal tengjast einhverju þeirra sex þema sem tilgreind eru í leiðbeiningum. Skilafrestur er til 31. október nk. og skulu þátttakendur fylla út þátttökueyðublað og senda Sameinuðu þjóðunum. Menntamálaráðuneytið hvetur íslenska skóla til að taka þátt í þessari samkeppni.
Meðfylgjandi eru leiðbeiningar og þátttökueyðublað (til fjölritunar).(doc - 120KB)
(September 2003)