Viðtalstímar sendiherra
Nr. 081
FRÉTTATILKYNNING
frá utanríkisráðuneytinu
frá utanríkisráðuneytinu
Viðskiptaþjónusta utanríkisráðuneytisins (VUR) og Útflutningsráð Íslands (ÚÍ) vinna saman að eflingu utanríkisviðskipta Íslands, þ. á m. útflutnings á vörum og þjónustu, í nánu samstarfi við sendiráð og ræðisskrifstofur Íslands víðsvegar um heim.
Ólafur Egilsson sendiherra sem annast samskipti Íslands við Indónesíu, Kambódíu, Malasíu, Singapúr og Tæland undirbýr nú ferð til þessara landa. Hann verður til viðtals þriðjudaginn 16. september nk. kl. 9:30 til 12:00 í húsakynnum Útflutningsráðs að Borgartúni 35.
Þá gefst aðilum í viðskiptalífinu og öðrum sem eiga hagsmuna að gæta í áðurnefndum löndum tækifæri til þess að ræða viðskiptamöguleika og önnur hagsmunamál þar sem þeir telja að utanríkisþjónustan geti orðið að liði.
Utanríkisráðuneytið
Reykjavík, 10. september 2003