Hjálmar W. Hannesson afhendir trúnaðarbréf sem fastafulltrúi Íslands hjá Sameinuðu þjóðunum
Nr. 087
FRÉTTATILKYNNING
frá utanríkisráðuneytinu
frá utanríkisráðuneytinu
Hjálmar W. Hannesson, sendiherra, hefur afhent Kofi Annan, aðalframkvæmdastjóra Sameinuðu þjóðanna, trúnaðarbréf sem fastafulltrúi Íslands hjá Sameinuðu þjóðunum.
Utanríkisráðuneytið
Reykjavík, 19. september 2003