Hoppa yfir valmynd
30. september 2003 Fjármála- og efnahagsráðuneytið

Akstursgjald ríkisstarfsmanna nr. 4/2003


Ferðakostnaðarnefnd hefur ákveðið akstursgjald í aksturssamningum ríkisstarfsmanna og ríkisstofnana sem hér segir:


Almennt gjald
Fyrstu 10.000 km......................................
kr.
56,50
pr.
km
Frá 10.000 til 20.000 km...........................
''
51,00
-
-
Umfram 20.000 km...................................
''
45,00
-
-



Við útreikning á sérstöku gjaldi skal bæta 15% álagi á almenna gjaldið og við útreikning á torfærugjaldi skal bæta 45% álagi á almenna gjaldið.

Akstursgjald þetta gildir frá og með 1. október 2003. Jafnframt fellur úr gildi auglýsing nr. 1/2003 dagsett 3. júní 2003.

Vakin er athygli á því að auglýsingar ferðakostnaðarnefndar eru birtar á vefsíðu fjármálaráðuneytisins. Þar er auk þess að finna reglur nefndarinnar um greiðslu dagpeninga erlendis og greinargerð um forsendur útreikninga akstursgjalds og dagpeninga. Veffangið er: http://fjarmalaraduneyti.is/ferdakostn.html.

Reykjavík, 30. september 2003.


Ferðakostnaðarnefnd


Athugið að leyfilegur frádráttur á móti ökutækjastyrk, samkvæmt skattmati ríkisskattstjóra, þarf ekki að vera sama fjárhæð og Ferðakostnaðarnefnd ákvarðar að greiða skuli starfsmönnum ríkisins vegna afnota launagreiðanda að bifreið launamanns. Sé leyfilegur frádráttur lægri ber að skila staðgreiðslu af mismuninum.
Sjá upplýsingar um ökutækjastyrk ríkisskattsstjóra.


Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta