Kynningarfundur UNESCO
Sent hagsmunaaðilum
Íslenska UNESCO-nefndin boðar hér með til kynningarfundar um UNESCO, Menningarstofnun Sameinuðu þjóðanna,þriðjudaginn 11. nóvember 2003 kl. 13-15
í menntamálaráðuneytinu, fundarherbergi á 4. hæð.
Á fundinum verður greint frá starfi UNESCO, fjárhags- og verkefnaáætlun UNESCO fyrir árin 2004-2005, kynnt og greint frá helstu málum sem fjallað var um á 32. aðalráðstefnu UNESCO sem haldin var í París dagana 29. september til 17. október 2003. Fyrst verður almenn kynning á UNESCO, en síðan verður þátttakendum skipt í hópa til að fjalla nánar um meginverkefnasvið UNESCO: menntamál, vísindamál, menningarmál, fjölmiðlamál og málefni ungs fólks.
Vinsamlegast tilkynnið þátttöku í síma 545 9480 eða á netfang: [email protected]
F.h. íslensku UNESCO-nefndarinnar
Rakel Björnsdóttir
vararitari
(Nóvember 2003)