Nýjar bandarískar reglur um innflutning matvæla
Nýjar bandarískar reglur um innflutning matvæla og fóðurs voru kynntar á upplýsingafundi utanríkisráðuneytisins og sjávarútvegsráðuneytisins sem haldinn var í Rúgbrauðsgerðinni 11. nóvember sl. Halldór Zoëga, forstöðumaður matvælasviðs Fiskistofu, fór yfir hagnýt atriði tengd reglunum og í framhaldi af því gafst tækifæri til fyrirpurna. Um 100 útflytjendur og flutningsaðilar sóttu fundinn.
Hér á síðunni má finna fyrirlestur Halldórs, upplýsingablað sem dreift var á fundinum auk annarra upplýsinga frá Matvæla- og lyfjastofnun Bandaríkjanna (FDA):
Upplýsingablað
Erindi Halldórs Zoega
Upplýsingablöð frá FDA um skráningu fyrirtækja
Upplýsingablöð frá FDA um tilkynningaskyldu
Heimasíða FDA