Áætlun um úthlutun framlaga vegna lækkaðra fasteignaskattstekna á árinu 2004
Ráðgjafarnefnd Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga samþykkti á fundi sínum 5. desember sl. áætlun um úthlutun framlaga vegna lækkaðra fasteignaskattstekna á árinu 2004. Skv. 5. gr. reglugerðar nr. 80/2001, greiðir Jöfnunarsjóður sveitarfélögunum framlag fyrirfram sem nemur 60% af framlagi næstliðins árs. Greiðslan er innt af hendi með fimm jöfnum greiðslum mánuðina febrúar til júní. Þegar útreikningur framlaga liggur fyrir greiðir sjóðurinn sveitarfélögum endanlegt framlag ársins að frádreginni fyrirframgreiðslu.
Áætlun um framlög til sveitarfélaga vegna lækkaðra fasteignaskattstekna á árinu 2004