Hoppa yfir valmynd
14. janúar 2004 Matvælaráðuneytið

Sérfræðingur í iðnaðarráðuneyti

Í iðnaðarráðuneyti er laust til umsóknar starf deildarsérfræðings á sviði orku-og umhverfismála. Umsóknarfrestur er til 1. febrúar n.k.

Umsækjendur skulu hafa lokið háskólaprófi á sviði hagfræði, viðskipta eða rekstrar. Reynsla á sviði opinberrar stjórnsýslu er æskileg. Starfið er einkum fólgið í samningu ýmissa álitsgerða, samskipta við stofnanir og orkufyrirtæki, undirbúningi löggjafar og reglugerða auk þátttöku í stefnumörkun á sviði orkumála. Um er að ræða fullt starf sem ráðið verður í frá og með 1. mars næstkomandi. Laun greiðast samkvæmt kjarasamningi FHSS. Nánari upplýsingar um starfið veitir Kristján Skarphéðinsson, ráðuneytisstjóri, í síma 545 8500.

Umsóknir með upplýsingum um menntun og starfsferil sendist iðnaðar- og viðskiptaráðuneyti, Arnarhvoli, 150 Reykjavík, í síðasta lagi 1. febrúar n.k. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin.

Iðnaðarráðuneytið

www.idnadarraduneyti.is

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta