Boð á blaðamannafund - Niðurstöður könnunar á einelti í grunnskólum
Þorgerður Katrín Gunnardóttir, menntamálaráðherra, boðar til blaðamannafundar um Olweusarverkefnið gegn einelti í grunnskólum sem 45 grunnskólar taka þátt í.
Þorlákur Helgason framkvæmdastjóri verkefnisins kynnir niðurstöður úr nýrri könnun á umfangi eineltis í þeim grunnskólum sem taka þátt í Olweusaráætluninni gegn einelti.
Sambærileg könnun var gerð í sömu skólum fyrir einu ári þegar verkefnið hófst og þegar má greina mjög athyglisverðan árangur í verkefninu.
Olweusarverkefnið er unnið í samstarfi menntamálaráðuneytis, Sambands íslenskra sveitarfélaga, Kennarasambands Íslands og samtakanna Heimilis og skóla með stuðningi Kennaraháskóla Íslands.
Kynningin fer fram í bókasafni Snælandsskóla í Kópavogi fimmtudaginn 22. janúar kl. 12.15. Fulltrúar fjölmiðla eru hvattir til að mæta.
Menntamálaráðuneytið, 21. janúar 2004