Hoppa yfir valmynd
21. janúar 2004 Heilbrigðisráðuneytið

Breytt lög um um Sjónstöðina

Jón Kristjánsson, heilbrigðis-og tryggingamálaráðherra, lagði í vikunni fyrir ríkisstjórn frumvarp til laga um breytingar á lögum nr. 18/1984 um Þjónustu- og endurhæfingarstöð sjónskertra. Með frumvarpinu er verið að skilgreina rétt einstaklinga með tilliti til sjúkratrygginga til samræmis við það sem gildir um annars konar heilbrigðisþjónustu. Þá er greiðsluþátttaka hins opinbera skýrð og skilgreind, t.d. þegar í hlut eiga einstaklingar sem þurfa sérhæfð hjálpartæki. Einnig er samkvæmt frumvarpinu gert ráð fyrir að ráðherra setji formlega gjaldskrá vegna þjónustunnar sem veitt er. Þeir sem t.d. eru ekki sjúkratryggðir hérlendis munu greiða fyrir þjónustuna samkvæmt gjaldskránni.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta