Skipun eigendanefndar Landsvirkjunar.
Nr. 2/2004
Skipun eigendanefndar Landsvirkjunar.
Sameignarsamningi um Landsvirkjun var breytt árið 1996. Þá var arðgjafar- og arðgreiðslumarkmiðum fyrirtækisins breytt jafnframt því sem ýmis stjórnunarleg atriði voru endurskoðuð í því skyni að líkja betur eftir hlutafélagaforminu. Sú nefnd eigenda Landsvirkjunar sem vann að breytingunum á sameignarsamningnum fór ásamt ráðgjafa sínum, JP Morgan, yfir kosti þess og galla að breyta Landsvirkjun í hlutafélag og minnka eða afnema eigendaábyrgð. Niðurstaðan var sú að gera ekki breytingar á rekstrarforminu en ákveðið var að fyrir 1. janúar 2004 skyldi fara fram endurskoðun á sameignarsamningi um Landsvirkjun, þ.m.t. á því hvort ástæða þætti til að stofna hlutafélag um Landsvirkjun.
Í ljósi ofangreinds hefur það orðið að samkomulagi á milli eigenda Landsvirkjunar, þ.e. ríkisins, Reykjavíkurborgar og Akureyrarbæjar, að skipa nýja eigendanefnd. Nefndin skal skoða fjárhagsstöðu og fjármögnun Landsvirkjunar, stöðu fyrirtækisins í breyttu umhverfi raforkumála og gera tillögur um breytingar á sameignarsamningi um fyrirtækið, m.a. um arðsemismarkmið með hliðsjón af nýjum raforkulögum. Nefndin skal ekki leggja til að breytingar verði gerðar á rekstrarformi fyrirtækisins að svo stöddu.
Nefndin er þannig skipuð:
-
Benedikt Árnason, skrifstofustjóri í iðnaðar- og viðskiptaráðuneyti, formaður,
-
Dan Jens Brynjarsson, sviðsstjóri stjórnsýslusviðs Akureyrarbæjar,
-
Sigurður Snævarr, borgarhagfræðingur,
-
Stefán Jón Friðriksson, sérfræðingur, fjármálaráðuneyti og
-
Vilhjálmur H. Vilhjálmsson, borgarlögmaður.
-
Ritari nefndarinnar er Jónína S. Lárusdóttir, lögfræðingur í iðnaðar- og viðskiptaráðuneyti.
Reykjavík, 27. janúar 2004.