Hoppa yfir valmynd
19. mars 2004 Mennta- og barnamálaráðuneytið

Styrkur til háskólanáms á Ítalíu og í Tékklandi

Ítölsk stjórnvöld bjóða fram styrk handa Íslendingum til háskólanáms á Ítalíu námsárið 2004-2005. Styrkurinn er einkum ætlaður til framhaldsnáms eða rannsókna við háskóla að loknu háskólaprófi eða til náms við listaháskóla.

Ítölsk stjórnvöld bjóða fram styrk handa Íslendingum til háskólanáms á Ítalíu námsárið 2004-2005. Styrkurinn er einkum ætlaður til framhaldsnáms eða rannsókna við háskóla að loknu háskólaprófi eða til náms við listaháskóla. Styrkurinn er til átta mánaða og nemur styrkfjárhæðin um 620 evrum á mánuði.Umsóknarfrestur er til 13. apríl nk. Nánari upplýsingar um styrkinn.

Einnig er gert ráð fyrir að tékknesk stjórnvöld bjóði fram styrk til átta mánaða námsdvalar við háskóla í Tékklandi skólaárið 2004-2005. Styrkir til skemmri námsdvalar koma einnig til greina þó ekki skemur en til þriggja mánaða. Nánari upplýsingar um styrkinn.

Umsóknarfrestur er til 1. maí nk.

Umsóknir um styrkina, ásamt staðfestum afritum prófskírteina og meðmælum, skulu sendar menntamálaráðuneytinu, Sölvhólsgötu 4, 150 Reykjavík, fyrir ofangreinda umsóknarfresti, á sérstökum umsóknareyðublöðum sem þar fást.

Menntamálaráðuneytið, 19. mars 2004.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum