Hoppa yfir valmynd
25. mars 2004 Mennta- og barnamálaráðuneytið

Styrkir til háskólanáms í Rússlandi

Stjórnvöld í Rússlandi bjóða fram einn styrk handa Íslendingi til háskólanáms skólaárið 2003-2004 og fimm styrki til skemmri námsdvalar/eða rannsókna í Rússlandi á sama námsári.

Stjórnvöld í Rússlandi bjóða fram einn styrk handa Íslendingi til háskólanáms skólaárið 2003-2004 og fimm styrki til skemmri námsdvalar/eða rannsókna í Rússlandi á sama námsári.

Umsækjendur um styrki til háskólanáms skulu að öðru jöfnu vera yngri en 27 ára og umsækjendur um styrki til skemmri námsdvalar/eða rannsókna skulu vera yngri en 35 ára og hafa lokið MA- eða MS-prófi. Fyrrnefndu styrkirnir nema 400 rúblum á mánuði (u.þ.b. 1.000 ísl. kr.) en þeir síðarnefndu 1.000 rúblum á mánuði (u.þ.b. 2.500 ísl. kr.). Að auki verður styrkþegum séð fyrir herbergi á stúdentagarði, sem þeir greiða fyrir sömu leigu og rússneskir námsmenn. Styrkþegar greiða sjálfir allan ferðakostnað.

Nánari upplýsingar og umsóknareyðublöð fást í menntamálaráðuneytinu, Sölvhólsgötu 4, 150 Reykjavík. Umsóknum fylgi staðfest afrit prófskírteina ásamt meðmælum og læknisvottorði. Umsóknarfrestur er til 24. apríl nk.

Menntamálaráðuneytið, 25. mars 2004

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum