Hoppa yfir valmynd
28. apríl 2004 Mennta- og barnamálaráðuneytið

Heimild til að ráða leiðbeinenda

Bréf sent skólastjórum ásamt umsóknareyðublaði um heimild til að ráða leiðbeinenda.

Til skólastjóra grunnskóla

 

Undanþágunefnd grunnskóla er skipuð samkvæmt lögum nr. 86/1998 um lögverndun á starfsheiti og starfsréttindum grunnskólakennara, framhaldsskólakennara og skólastjóra.

Í nefndinni eiga sæti Sigríður Lára Ásbergsdóttir, deildarsérfræðingur í menntamálaráðuneytinu, formaður, Valgerður Eiríksdóttir, kennari, fulltrúi Kennarasambands Íslands og Kristín Aðalsteinsdóttir, dósent, fulltrúi Háskólans á Akureyri, sem er í veikindaleyfi og gegnir Guðmundur Kristmundsson, dósent í Kennaraháskóla Íslands störfum hennar á meðan. Áheyrnarfulltrúi er Kristinn Kristjánsson frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga. Starfsmaður og jafnframt varaformaður er Erla Ósk Guðjónsdóttir, stjórnarráðsfulltrúi í menntamálaráðuneytinu, netfang: [email protected]

 

Meðfylgjandi sendist yður umsóknareyðublað um heimild til að ráða leiðbeinenda.

 

Nefndin vill ennfremur benda yður á að á heimasíðu menntamálaráðuneytisins www.menntamalaraduneyti.is er hægt að nálgast umsóknareyðublaðið, lög nr. 86/1998 um lögverndun á starfsheiti og starfsréttindum grunnskólakennara, framhaldsskólakennara og skólastjóra, reglugerð nr. 751/1998 um undanþágunefnd, skýrslur um störf undanþágunefndar undanfarinna ára og yfirlit yfir umsóknir samþykktar af ráðherra. 

 

Vakin er sérstök athygli á að til að afgreiðsla umsókna gangi fljótt og vel er nauðsynlegt að þar til gerð eyðublöð séu vandlega útfyllt og að þær upplýsingar og þau fylgigögn sem beðið er um fylgi með umsókn.

 

Að gefnu tilefni er sérstaklega vakin athygli á eftirfarandi:

a.       að undanþágunefnd veitir eingöngu heimild til undanþágu þegar um er að ræða kennslustarf ekki starf stuðningsfulltrúa

b.       að skv. lögverndunarlögum á starfsheiti og starfsréttindum grunnskólakennara, framhaldsskólakennara og skólastjóra nr. 86/1998 ber að auglýsa öll laus kennslu- og stjórnunarstörf

c.       að afrit af auglýsingum þurfa að fylgja umsókn, þar sem m.a. eru tilgreindar aðalkennslugreinar og aldursstig nemenda

d.       að fáist heimild frá undanþágunefnd til að lausráða starfsmann gildir sú heimild aldrei lengur en til eins árs í senn

e.       að ekki má endurráða slíkan starfsmann án undangenginnar auglýsingar.

 

Ófullnægjandi umsókn, sbr. 3. og 4. gr. reglugerðar nr. 751/1998 um undanþágunefnd grunnskóla verður ekki tekin til afgreiðslu.

 

Með ósk um ánægjulegt samstarf,

 

 

Undanþágunefnd grunnskóla

 

_____________________________

Sigríður Lára Ásbergsdóttir, formaður

[email protected]

 

            _________________________                                              _____________________

            Guðmundur Kristmundsson                                            Valgerður Eiríksdóttir



Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum