Hoppa yfir valmynd
12. maí 2004 Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið

Verðlaun fyrir unna refi og minka árið 2004

Auglýsing um verðlaun fyrir unna refi og viðmiðunartaxta og verðlaun fyrir unna minka árið 2004

Við endurgreiðslu ríkisins til sveitarfélaga á hlutdeild ríkisins í verðlaunum fyrir unna refi, skv. 12. gr. og fyrir unna minka, skv. 13. gr. laga nr. 64/1994 um vernd, friðun og veiðar á villtum fuglum og villtum spendýrum og skv. 10. gr. reglugerðar nr. 437 um refa- og minkaveiðar með áorðnum breytingum, sbr. reglugerð nr. 205/1997 um breytingu á reglugerð nr. 437/1995, skal árið 2004 miða við:

Fyrir refi; hámarksverðlaun sem hér segir:

Refir 7.000 kr. á dýr
Yrðlingar 1.600 kr. á dýr

Fyrir minka:

Verðlaun fyrir unnin mink 3.000 kr.
Tímakaup ráðinna veiðimanna 650 kr/klst.
Akstur 50 kr/km.

Endurgreiðsla ríkisins til sveitarfélaga vegna:

refaveiða miðast að hámarki við 50% af ofangreindum verðlaunum eða af lægri upphæð sem sveitarfélög kunna að ákveða sem hæfileg verðlaun fyrir unna refi í sveitarfélaginu eftir því sem fjárveitingar á fjárlögum leyfa.

minkaveiða miðast að hámarki við 50% af kostnaði við minkaveiðar, skv. ofangreindum viðmiðunartaxta eftir því sem fjárveitingar á fjárlögum leyfa.

Sveitarfélög skulu fyrir 15. október nk. senda Umhverfisstofnun umsókn um endurgreiðslur.

Umhverfisráðuneytinu,

19. apríl 2004.



Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta