Könnun á viðhorfi almennings til Landspítala
Gallup hefur kannað afstöðu almennings til Landspítala – háskólasjúkrahúss og voru niðurstöðurnar kynntar í tengslum við ársfund spítalans í gær. Könnunin sýnir að stofnunin nýtur umtalsverðs trausts almennings og að fólk er afar jákvætt gagnvart henni.