Hoppa yfir valmynd
21. maí 2004 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið

Atkvæðagreiðsla um sameiningu sveitarfélaga

Atkvæðagreiðsla um sameiningu sveitarfélaga
Atkvæðagreiðsla um sameiningu sveitarfélaga

Almenn atkvæðagreiðsla um sameiningu Hríseyjarhrepps og Akureyrarkaupstaðar mun fara fram samhliða forsetakosningum laugardaginn 26. júní nk.

Samstarfsnefnd um sameiningu Hríseyjarhrepps og Akureyrarkaupstaðar hefur ákveðið að leggja til að íbúar þessara sveitarfélaga greiði atkvæði um sameiningu þeirra í eitt sveitarfélag. Hafa sveitarstjórnir beggja sveitarfélaganna fallist á að atkvæðagreiðslan fari fram laugardaginn 26. júní nk., samhliða forsetakosningum.

Kosningarrétt eiga allir íbúar þessara sveitarfélaga sem náð hafa 18 ára aldri þegar kosningin fer fram og uppfylla skilyrði 2. gr. laga um kosningar til sveitarstjórna, nr. 5/1998. Þetta þýðir m.a. að danskir, finnskir, norskir og sænskir ríkisborgarar sem hafa átt lögheimili hér á landi í þrjú ár samfellt fyrir kjördag, og aðrir erlendir ríkisborgarar sem hafa átt lögheimili hér á landi í fimm ár samfellt fyrir kjördag, mega greiða atkvæði um tillögu sameiningarnefndar. Er þetta í samræmi við breytingu sem gerð var á fyrrgreindum lögum á árinu 2002.

Skilyrði er að kjósandi eigi lögheimili í sveitarfélaginu samkvæmt íbúaskrá þjóðskrár þremur vikum fyrir kjördag. Þeir sem hyggjast flytja lögheimili sitt fyrir þann tíma þurfa að tilkynna breytinguna til Hagstofu Íslands í síðasta lagi föstudaginn 4. júní nk.

Utankjörfundaratkvæðagreiðsla er þegar hafin. Unnt er að greiða atkvæði utan kjörfundar hjá sýslumönnum um allt land. Erlendis fer atkvæðagreiðsla fram á skrifstofu sendiráðs eða fastanefndar hjá alþjóðastofnunum, kjörræðismönnum eða á öðrum stöðum samkvæmt ákvörðun utanríkisráðuneytis.

Atkvæðagreiðsla utan kjörfundar fer þannig fram að þeir kjósendur sem eru hlynntir sameiningu sveitarfélaganna tveggja skrifa „já“ á kjörseðilinn en þeir sem eru mótfallnir sameiningu skrifa „nei“.

Hljóti sameiningartillagan samþykki íbúa beggja sveitarfélaga er gert ráð fyrir því að sameiningin taki gildi 1. ágúst nk. Er gert ráð fyrir því að frá þeim degi og til loka yfirstandandi kjörtímabils fari bæjarstjórn Akureyrarkaupstaðar með stjórn hins sameinaða sveitarfélags.



Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum