Úrskurður vegna fyrirhugaðs laxeldis í Seyðisfirði
Umhverfisráðherra staðfesti þann 14. maí s.l. þá ákvörðun Skipulagsstofnunar frá 29. desember 2003, að fyrirhugað eldi á allt að 1.500 tonnum af laxi í sjókvíum í Seyðisfirði væri ekki líklegt til að hafa í för með sér umtalsverð umhverfisáhrif og skyldi því ekki háð mati á umhverfisáhrifum.
Úrskurðurinn er aðgengilegur á rettarheimild.is.