Dagpeningar ríkisstarfsmanna á ferðalögum innanlands. Auglýsing nr. 2/2004
Ferðakostnaðarnefnd hefur ákveðið dagpeninga til greiðslu gisti- og fæðiskostnaðar ríkisstarfsmanna á ferðalögum innanlands á vegum ríkisins sem hér segir:
1. | Gisting og fæði í einn sólarhring |
kr.
|
15.700
|
|
2. | Gisting í einn sólarhring |
''
|
10.200
|
|
3. | Fæði hvern heilan dag, minnst 10 tíma ferðalag |
''
|
5.500
|
|
4. | Fæði í hálfan dag, minnst 6 tíma ferðalag |
''
|
2.750
|
Dagpeningar þessir gilda frá og með 1. júní 2004. Jafnframt fellur úr gildi auglýsing nr. 5/2003 dags. 30. september 2003.
Nefndin fer þess á leit við viðkomandi ráðuneyti að þau kynni efni þessarar auglýsingar þeim stofnunum og fyrirtækjum sem undir þau heyra.
Ennfremur er vakin athygli á því að auglýsing ferðakostnaðarnefndar um dagpeninga er á vefsíðu fjármálaráðuneytisins og er veffangið eftirfarandi: http://fjarmalaraduneyti.is/ferdakostn.html
Reykjavík, 26. maí 2004.
Ferðakostnaðarnefnd
Athugið að leyfilegur frádráttur á móti dagpeningum, samkvæmt skattmati ríkisskattstjóra, þarf ekki að vera sama fjárhæð og Ferðakostnaðarnefnd ákvarðar að greiða skuli starfsmönnum ríkisins vegna ferða á vegum launagreiðanda. Sé leyfilegur frádráttur lægri ber að skila staðgreiðslu af mismuninum.
Sjá upplýsingar um dagpeninga hjá ríkisskattstjóra og upplýsingar um dagpeninga - skattmat hjá ríkisskattstjóra.