Þjónusta við innflytjendur
Félagsmálaráðherra skipaði starfshóp, með erindisbréfi dagsettu 12. nóvember 2003, og var hlutverk hópsins að fjalla um þjónustu við innflytjendur á Íslandi, skipulag hennar og fyrirkomulag.
Starfshópurinn hefur nú skilað greinargerð og tillögum.
Helstu verkefni sem starfshópnum voru falin:
- Að móta tillögur um með hvaða hætti sé unnt að auka samvinnu og samhæfa þá þjónustu sem í dag er innt af hendi hjá þeim aðilum sem helst hafa með málaflokk innflytjenda að gera á Íslandi. Er þá átt við ríki, sveitarfélög, frjáls félagasamtök og aðra.
- Að skilgreina og forgangsraða þeim þáttum þjónustu sem æskilegt er að í boði séu hjá þjónustuaðilum og koma með tillögur um hugsanlega verkaskiptingu aðila í málaflokknum.
- Að móta tillögur um hvar hugsanleg þörf sé á að auka við þjónustu við útlendinga búsetta á Íslandi og hvernig henni verði best fyrir komið.
Greinargerð og tillögur starfshóps um þjónustu við innflytjendur á Íslandi (200 KB)