Hoppa yfir valmynd
22. júní 2004 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið

Sameiningarkosningar

Atkvæðagreiðsla um sameiningu sveitarfélaga
Atkvæðagreiðsla um sameiningu sveitarfélaga

Sameiningarkosningar sem fara fram 26. júní nk.

Ráðuneytið minnir á að tvennar sameiningarkosningar munu fara fram samhliða forsetakosningunum nk. laugardag, 26. júní.:

1) Atkvæðagreiðsla um sameiningu Hríseyjarhrepps og Akureyrarkaupstaðar

Samstarfsnefnd um sameiningu Hríseyjarhrepps og Akureyrarkaupstaðar, í umdæmi sýslumannsins á Akureyri, hefur ákveðið að leggja til að íbúar þessara sveitarfélaga greiði atkvæði um sameiningu þeirra í eitt sveitarfélag. Hafa sveitarstjórnir beggja sveitarfélaganna fallist á að atkvæðagreiðslan fari fram samhliða forsetakosningum.

2) Atkvæðagreiðsla um sameiningu fjögurra sveitarfélaga á Héraði

Samstarfsnefnd um sameiningu Austur-Héraðs, Fellahrepps, Fljótsdalshrepps og Norður-Héraðs, í umdæmi sýslumannsins á Seyðisfirði, hefur ákveðið að atkvæðagreiðsla fari fram um sameiningu þessara sveitarfélaga í eitt sveitarfélag. Sveitarstjórnir þessara sveitarfélaga hafa sömuleiðis fallist á tillögu nefndarinnar um að atkvæðagreiðslan fari fram samhliða forsetakosningum.

Almennt um framkvæmd kosningarinnar

Kosningarrétt eiga allir íbúar framangreindra sveitarfélaga sem náð hafa 18 ára aldri þegar kosningin fer fram og uppfylla skilyrði 2. gr. laga um kosningar til sveitarstjórna, nr. 5/1998. Þetta þýðir m.a. að danskir, finnskir, norskir og sænskir ríkisborgarar sem hafa átt lögheimili hér á landi í þrjú ár samfellt fyrir kjördag, og aðrir erlendir ríkisborgarar sem hafa átt lögheimili hér á landi í fimm ár samfellt fyrir kjördag, mega greiða atkvæði um tillögu sameiningarnefndar. Er þetta í samræmi við breytingu sem gerð var á fyrrgreindum lögum á árinu 2002.

Unnt er að greiða atkvæði utan kjörfundar hjá sýslumönnum um allt land og á kjörstöðum í viðkomandi sveitarfélögum á kjördag, 26. júní. Erlendis fer atkvæðagreiðsla fram á skrifstofu sendiráðs eða fastanefndar hjá alþjóðastofnunum, kjörræðismönnum eða á öðrum stöðum samkvæmt ákvörðun utanríkisráðuneytis. Atkvæðagreiðsla utan kjörfundar fer þannig fram að þeir kjósendur sem eru hlynntir sameiningu sveitarfélaganna tveggja skrifa „já“ á kjörseðilinn en þeir sem eru mótfallnir sameiningu skrifa „nei“.

Skilyrði er að kjósandi eigi lögheimili í sveitarfélaginu samkvæmt íbúaskrá þjóðskrár þremur vikum fyrir kjördag. Viðkomandi sveitarstjórnir auglýsa nánar staðsetningu kjörstaða og opnunartíma þeirra, svo og hvar talning atkvæða fer fram í hverju sveitarfélagi.



Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum