Hoppa yfir valmynd
25. júní 2004 Mennta- og barnamálaráðuneytið

Norrænir starfsmenntunarstyrkir

Menntamálaráðuneyti Danmerkur, Noregs og Svíþjóðar veita á námsárinu 2003-2004 nokkra styrki handa Íslendingum til náms við fræðslustofnanir þar í landi.

Menntamálaráðuneyti Danmerkur, Noregs og Svíþjóðar veita á námsárinu 2003-2004 nokkra styrki handa Íslendingum til náms við fræðslustofnanir þar í landi. Styrkirnir eru einkum ætlaðir til framhaldsnáms eftir iðnskólapróf eða hliðstæða menntun, til undirbúnings kennslu í iðnskólum eða framhaldsnáms iðnskólakennara, svo og ýmiss konar starfsmenntunar sem ekki er unnt að afla á Íslandi. Fjárhæð styrks í Danmörku er 20.500 d.kr., Noregi 25.000 n.kr. og í Svíþjóð um 20 - 25.000 s.kr.

Frestur til að skila inn umsóknum, ásamt staðfestum afritum prófskírteina og meðmælum, er hér með framlengdur til 3. júlí nk. Umsóknir skulu sendar menntamálaráðuneytinu, Sölvhólsgötu 4, 150 Reykjavík, á sérstökum eyðublöðum sem þar fást.



Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum