Fréttatilkynning frá Barnamenningarsjóði
Barnamenningarsjóður, sem starfar samkvæmt reglum nr. 594/2003, hefur lokið úthlutun styrkja 2004. Auglýst var eftir umsóknum 26. mars og rann umsóknarfrestur út 26. apríl. Alls sóttu 46 aðilar um styrki til 49 verkefna. Úthlutað var styrkjum samtals að fjárhæð kr. 1.970 þús. til eftirtalinna 11 verkefna:
IBBY á Íslandi | |
vegna lestrarhvetjandi verkefnis á Íslandi | |
sem felst í dagatali fyrir leikskóla með | |
myndskreytingum og textabrotum og | |
verður í framkvæmd allt árið 2005 | 120.000,- kr |
Félag um tónlistarsumarbúðir | |
vegna strengjafestivals fyrir börn í | |
Skálholti 15. - 19. júní og 7. - 12. ágúst 2004 | 100.000,- kr |
Ingólfur Örn Björgvinsson | |
vegna bókarinnar Brennurnar 2. hluta | |
teiknimyndasögu um Brennu-Njálssögu | 200.000,- kr |
Ingvar Sigurgeirsson | |
til reksturs og eflingar Leikjabankans á vefnum | 100.000,- kr |
Kvikmyndaskóli Íslands | |
til að gera heimildarmynd um sköpunarverkefni | |
barna í leikskólanum Sæborgu tengdu við | |
uppeldisstefnu Reggio Emilia | 200.000,- kr |
Margrét Tryggvadóttir og Anna C. Leplar | |
til að vinna bók fyrir börn um | |
íslenska myndlist frá ýmsum tímum | 200.000,- kr |
Menningarmiðstöðin Gerðuberg | |
vegna stofnunar barnalistasafns í Gerðubergi | 200.000,- kr |
Sinfóníuhljómsveit Norðurlands | |
til að semja nýtt tónverk sem byggt er á | |
jólaævintýri og frumflutt verður á aðventutónleikum | |
hljómsveitarinnar þann 5. desember 2004 | 150.000,- kr |
Strengjaleikhúsið | |
til uppsetningar barnaóperunnar Tígrisblómið | 300.000,- kr |
Þorbjörg Karlsdóttir | |
vegna barnabókahátíðarinnar Galdur út í mýri | |
í Norræna húsinu 30. september - 4. október 2004 | 200.000,- kr |
Ævintýradansleikhúsið | |
vegna námskeiðs og fjöllistasýningar barna | |
á Akureyri veturinn 2004-2005 | 200.000,- kr |
Stjórn Barnamenningarsjóðs, 30. júní 2004