Hoppa yfir valmynd
2. júlí 2004 Mennta- og barnamálaráðuneytið

Auglýsing um styrki vegna skráningar og miðlunar menningarefnis á landsbyggðinni

Ákveðið hefur verið að veita styrki til verkefna sem nýta upplýsingatækni og Netið til að auka aðgengi almennings að menningararfi þjóðarinnar.

Samkvæmt samkomulagi menntamálaráðuneytisins og iðnaðarráðuneytisins hefur verið ákveðið að veita styrki til verkefna sem nýta upplýsingatækni og Netið til að auka aðgengi almennings að menningararfi þjóðarinnar. Styrkir verða veittir til menningarstofnana eða annarra aðila sem standa fyrir skipulagðri menningarstarfsemi á landsbyggðinni.

Verkefni sem fela í sér einhverja af eftirtöldum þáttum eiga möguleika á styrk:

  • Söfnun og skráning upplýsinga, heimilda, fróðleiks og myndefnis til birtingar á Netinu.
  • Aukna samvinnu og samskipti menningarstofnana í upplýsingatækni og til miðlunar á Netinu.
  • Samræmd vinnubrögð við skráningu og miðlun upplýsinga á Netinu.

Leitað er eftir hugmyndaríkum verkefnum sem tengjast tilteknum svæðum á landsbyggðinni eða tengjast menningarlífi þess á einhvern hátt. Nánari upplýsingar um verkefnið, skilyrði fyrir umsóknum og umsóknareyðublað er að finna á vefslóðinni: www.opinmenning.org. Umsóknarfrestur er til 6. ágúst og umsóknum skal skila til menntamálaráðuneytis, Sölvhólsgötu 4, 150 Reykjavík.

Menntamálaráðuneytið, 4. júlí 2004.



Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum