Hoppa yfir valmynd
21. júlí 2004 Forsætisráðuneytið

Veikindi forsætisráðherra

Frétt nr.: 25/2004

Davíð Oddsson forsætisráðherra var í nótt fluttur á Landspítala háskólasjúkrahús vegna verkja í kviðarholi og er hann þar til rannsóknar.

Í Reykjavík, 21. júlí 2004

Aðgerðin gekk að óskum

Frétt nr.: 26/2004


Forsætisráðherra var lagður inn á Landspítalann við Hringbraut síðastliðna nótt vegna gallblöðrubólgu. Við rannsókn kom í ljós staðbundið æxli í hægra nýra. Forsætisráðherra hefur gengist undir aðgerð þar sem gallblaðran var fjarlægð og sömuleiðis hægra nýra. Aðgerðin gekk að óskum.


Í Reykjavík, 21. júlí 2004.



Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta