Dómsmálaráðherra skipar í tvö embætti héraðsdómara
Fréttatilkynning
Nr. 9/2004
Dómsmálaráðherra hefur skipað Sigrúnu Guðmundsdóttur hæstaréttarlögmann í embætti héraðsdómara við Héraðsdóm Reykjavíkur og Ásgeir Magnússon hæstaréttarlögmann í embætti héraðsdómara, sem fyrst um sinn mun ekki eiga fast sæti við tiltekinn dómstól, sbr. heimild í lögum um dómstóla. Skipað er í stöðurnar frá 1. september 2004.
Í dóms- og kirkjumálaráðuneytinu,
22. júlí 2004.