Hoppa yfir valmynd
13. ágúst 2004 Dómsmálaráðuneytið

Ný lög um sölu fasteigna-, fyrirtækja- og skipa

Hinn 1. október n.k. taka gildi ný lög um sölu fasteigna-, fyrirtækja- og skipa nr. 99/2004. Unnið er að samningu reglugerða á grundvelli hinna nýju laga, þar á meðal reglugerðar um námskeið og próf fyrir þá sem öðlast vilja löggildingu sem fasteignasalar og er gert ráð fyrir að þeirri vinnu verði lokið fyrir 1. október n.k.

Ekki er unnt að svo stöddu að segja til um hvenær námskeið til löggildingar fasteignasala verður haldið en stefnt er að því að halda slíkt námskeið eins fljótt og unn er eftir að lögin hafa tekið gildi. Þegar frekari upplýsingar liggja fyrir verður þeim komið á framfæri á heimasíðu ráðuneytisins



Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum